dcsimg

Nashyrningur ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Nashyrningur (eða í eldri íslensku skurni) (fræðiheiti: Rhinocerotidae) er ætt hófdýra sem telur aðeins fimm núlifandi tegundir. Tvær af þessum tegundum lifa í Afríku og þrjár í Suður-Asíu.

Nashyrningar eru stórar jurtaætur og verða allt að tonn að þyngd. Þeir eru með mjög þykka húð (1-1,5 sm að þykkt) tiltölulega lítinn heila og stórt horn á nefinu. Ólíkt öðrum hófdýrum eru nashyrningar ekki með tennur í framgómi og treysta því aðeins á öfluga jaxla til að mala fæðuna.

Nashyrningar hafa góða heyrn og lyktarskyn en lélega sjón. Þeir ná um sextíu ára aldri.

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS