dcsimg

Mycobacterium tuberculosis ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Mycobacterium tuberculosis er nauðháð loftsækin baktería sem veldur berklum. Hún tilheyrir fylkingu geislagerla og flokkast því sem Gram-jákvæð þó hún litist reyndar illa eða ekki með hefðbundinni Gramlitun vegna vaxkenndrar slímhúðar úr mýkóliksýru sem umlykur frumurnar. Hún litast, hins vegar, vel með svokallaðri sýrufastri litun, eða Ziel-Nielsen litun, og er því gjarnan sögð sýruföst.[2]

Saga

Robert Koch uppgötvaði M. tuberculosis og lýsti henni í grein sem kom út 24. mars 1882[3] og nú þykir klassísk.[4] Hann hlaut nóbelsverðlaunin í læknis- eða lífeðlisfræði árið 1905 fyrir uppgötvun sína.

Heimildir

  1. W. Zopf (1883). Die Spaltpilze. Edward Trewendt, Breslau.
  2. Ryan, K. J. og C. G. Ray (ritstjórar) (2004). Sherris Medical Microbiology (4. útg.. útgáfa). McGraw Hill. ISBN 0-8385-8529-9.
  3. Koch, R. (1882). „Die Aetiologie der Tuberkulose“. Berliner Klinische Wochenschrift. 19 (15): 221–230.
  4. Brock, Thomas D. (1999). Robert Koch: A Life in Medicine and Bacteriology. ASM Press, Washington, DC.
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Mycobacterium tuberculosis: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Mycobacterium tuberculosis er nauðháð loftsækin baktería sem veldur berklum. Hún tilheyrir fylkingu geislagerla og flokkast því sem Gram-jákvæð þó hún litist reyndar illa eða ekki með hefðbundinni Gramlitun vegna vaxkenndrar slímhúðar úr mýkóliksýru sem umlykur frumurnar. Hún litast, hins vegar, vel með svokallaðri sýrufastri litun, eða Ziel-Nielsen litun, og er því gjarnan sögð sýruföst.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS